Enex Kína í sæng með Sinopec

Morgunblaðið Eftir Baldur Arnarson - baldur@mbl.is

Kínverska risafyrirtækið Sinopec og Enex Kína, jarðvarmafélag í eigu Geysis Green Energy (75%) og Reykjavik Energy Invest (25%), hafa tekið höndum saman um sameiginlega uppbyggingu jarðvarmaveitna í þessu fjölmennasta ríki heims, sem telur um 1.300 milljónir manna.
Sinopec fer með ráðandi hlut í félaginu (51% hlutafjár) en Enex Kína með afganginn.

Samningurinn þykir viðurkenning á íslenskri jarðhitatækni í Kína en þar ber hæst uppbyggingu Enex Kína á jarðvarmaveitu í Xianyang í Shaanxi-héraði, borg með um hálfa milljón íbúa.

Sú veita náði því marki í fyrra að jafnast á við hitaveituna í Reykjanesbæ að umfangi og er stefnt að því að hún fimmtánfaldist, úr rúmlega milljón upphitaðra húsnæðisfermetra nú, í um 15 milljónir húsnæðisfermetra innan nokkurra ára. Verkefnin geta því verið gríðarstór en umfangið fer og mun fara eftir aðstæðum hverju sinni.

Næsta verkefnið í Hebei-héraði

Fyrsta sameiginlega verkefni fyrirtækjanna er að halda áfram uppbyggingunni í Xianyang. Næsti áfangi verður svo í Xiong-sýslu í Hebei-héraði þar sem áætlað er að hita upp 300.000 fermetra með jarðvarmaveitu þegar á þessu ári og svo milljón fermetra 2010. Önnur verkefni sem fyrirhuguð eru eru í Shandong-héraði, skammt frá höfuðborginni Peking, en Jiang Zhu, svæðisstjóri Geysis Green Energy í Asíu, með aðsetur í Shanghai, segir aðspurður ekki tímabært að upplýsa um frekari verkefni að svo stöddu.

Eitt stærsta fyrirtæki heims

Kínverska ríkisfyrirtækið Sinopec er 9. stærsta fyrirtæki heims, ef horft er til markaðsvirðis, samkvæmt árlegum lista tímaritsins Fortune, Global 500, sem birtur var í ársbyrjun. Á vefsíðu Fortune segir að Sinopec hafi um 80% hlutdeild á kínverska olíumarkaðnum. Starfsmenn eru sagðir 639.690 en ef dótturfyrirtæki eru talin með fer fjöldi þeirra yfir milljón. Umsvifin eru gríðarleg. Veltan á fjárhagsárinu 2008 var tæpir 208 milljarðar dala eða sem svarar 26.135 milljörðum króna miðað við núverandi gengi. Þá var hagnaður ársins 2008 um 246 milljarðar króna eða um 53% minni en 2007, sem skýrist af hækkandi innkaupsverði á olíu. Fyrirtækið er í senn olíu- og gasvinnslurisi og umsvifamikið í efnaiðnaði. Sinopec Star er dótturfélag olíurisans en það hefur á stefnu sinni að endurnýjanleg orka verði ein af þremur meginstoðunum í rekstri þess.

Nánar er fjallað um málið í sunnudagsútgáfu Morgunblaðsins.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti »

Iceland Foods.

Söluferli Iceland Foods framlengt

Í gær, 21:05 Ákveðið hefur verið að framlengja söluferli verslunarkeðjunnar Iceland Foods en tveir fjárfestingasjóðir hafa gert tilboð í hlutafé keðjunnar. Sjóðirnir eru sagðir hafa metið verðmæti keðjunnar í janúar á 1,4-1,5 milljarða punda eða á 271 milljarð íslenskra króna. Meira »
Óeirðir í Egyptalandi koma niður á efnahag landsins.

S&P: Egyptaland dýpra í ruslflokkinn

Í gær, 19:42 Egypska ríkið fékk skell í dag er matsfyrirtækið Standard & Poor's lækkaði lánshæfiseinkunn þess „dýpra niður í ruslflokk,“ líkt og það er orðað í frétt AP. Ótryggt stjórnmálaástand og stöðug átök í landinu eru sögð skýringin. Meira »

Lækka lánshæfiseinkunn ítalskra banka

Í gær, 19:02 Matsfyrirtækið Standard & Poor's hefur lækkað lánshæfiseinkunn 34 ítalskra banka. Um miðjan janúar lækkaði fyrirtækið lánshæfiseinkunn ítalska ríkisins um tvo punkta. Meira »

Lækkun á Wall Street

Bandarískir hlutabréfamarkaðir hafa lækkað það sem af er degi
Í gær, 15:14 Bandarískar hlutabréfavísitölur hafa lækkað það sem af er degi vegna Grikklands-vandans og minni þenslu í kínversku efnahagslífi. Meira »

Litlar breytingar á krónunni

Í gær, 10:59 Eftir umtalsverða veikingu á gengi krónunnar í janúarmánuði hefur lítil breyting orðið þar á það sem af er febrúar.  Meira »

Verðbólgan 2,1% í Þýskalandi

Verðbólgan mælist 2,1% í Þýskalandi
Í gær, 09:57 Verðbólgan mæld á tólf mánaða tímabili var 2,1% í Þýskalandi í síðasta mánuði. Er þetta sama verðbólga og mældist í Þýskalandi, stærsta hagkerfi innan evrusvæðisins, í desember. Meira »

Verne Global í samstarf við Opin kerfi

Fyrirtækið Opin kerfi er með höfuðstöðvar við Höfðabakka í Reykjavík.
Í gær, 16:05 Verne Global tilkynnti í gær að það hafi valið Opin kerfi sem samstarfs- og þjónustuaðila til stuðnings við starfsemi sína hér á landi. Verne Global opnaði í vikunni eitt fullkomnasta gagnaver heims að Ásbrú í Reykjanesbæ. Meira »

Lítill áhugi hjá útlendingum

Í gær, 11:31 Svo virðist sem erlendir aðilar hafi verið afar áhugalitlir um þau tvö ríkisbréfaútboð Lánamála sem fóru fram í janúarmánuði. Meira »

Samdrátturinn 17,7%

Gríðarlegt atvinnuleysi er á Spáni og fasteignasala dræm
Í gær, 10:41 Fasteignasala dróst saman um 17,7% á Spáni á síðasta ári og virðist því bati á fasteignamarkaði sem sjáanlegur var árið 2010 á Spáni vera horfinn. Meira »

Minni hagnaður hjá Barclays

Barclays bankinn
Í gær, 08:47 Hagnaður breska bankans Barclays dróst saman um 16% á síðasta ári og nam 3 milljörðum punda, 581 milljarði króna.  Meira »

Mun snarlækka verð á þjónustu

Vélbúnaður fluttur í gagnaverið á Ásbrú í Reykjanesbæ.
Í gær, 07:30 Í gær tilkynnti Verne Global fyrstu viðskiptavini gagnaversins sem fyrirtækið hefur reist við Ásbrú í Reykjanesbæ. Það eru fyrirtækin CCP og GreenQloud. Meira »

Vafasöm ákvörðun í upphafi að nota Gillz myndskeið

Alkemistinn mbl 43 Gillz22
Í gær, 09:50 Mikil umræða hefur átt sér stað síðustu vikur um stóra límmiðamálið svokallaða. Stjórnendur Já.is ákváðu þá að framleiða og dreifa límmiðum sem viðskiptamenn þeirra gætu notað til þess að líma yfir mynd á forsíðu símaskráarinnar. Meira »

Lækkun á mörkuðum

Í gær, 08:36 Allir helstu hlutabréfamarkaðir hafa lækkað í dag vegna stöðu mála í Grikklandi þar sem fjármálaráðherrar ríkja á evrusvæðinu gera auknar kröfur um niðurskurð í Grikklandi. Meira »

Tvær nýjar vélar í flota Icelandair

í fyrradag Forstjóri Icelandair Group segist sáttur við fjárhagslega niðurstöðu síðasta árs en 4,5 milljarða króna hagnaður varð af rekstrinum. Í ár bætast tvær nýjar flugvélar í flota fyrirtækisins. „Icelandair verður með umsvifamestu flugáætlun sína frá upphafi í ár,“ segir forstjórinn. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
ISK -   ISK USD - Bandaríkjadalur  USD
EUR - Evra  EUR GBP - Sterlingspund  GBP
CAD - Kanadadalur  CAD DKK - Dönsk króna  DKK
NOK - Norsk króna  NOK SEK - Sænsk króna  SEK
CHF - Svissneskur franki  CHF JPY - Japanskt jen  JPY
Gengi gjaldmiðla

Guðmundur um markaðsmál

mynd Ogilvy um prentauglýsingar.
David Ogilvy er oft kallaður faðir nútíma auglýsingamennsku. Hér verða skoðanir hans á því hvernig hægt er að ná hámarks árangri með prentauglýsingum Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir