Viðskipti
| Morgunblaðið
| 10.8.2009
| 5:30
| Uppfært
7:24
Bréfasending staðfest
Stjórn Nýja Kaupþings sendi fyrir nokkru tölvupóst til starfsmanna bankans. Þar kom fram að stjórnin hefði ekki átt þátt í ákvörðun bankastjóra um að setja lögbann á fréttaflutning RÚV um vinnuskjal um háar lánveitingar til viðskiptavina Kaupþings, sem lekið var á Wikileaks.org, og mikið hafa verið í umræðunni að undanförnu. Morgunblaðið hefur fengið staðfestingu á þessu, en frá þessu var fyrst greint á vefsíðunni pressan.is.
Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri, fór fram á lögbannið fyrir hönd nýja bankans ásamt skilanefnd Kaupþings. Voru rökin m.a. þau að birtingin væri brot á lögum um bankaleynd.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















