Mikill samdráttur í Eystrasaltslöndum
Mikill samdráttur hefur orðið í hagkerfum Eystrasaltslandanna á þessu ári, samkvæmt hagtölum, sem verið hafa að birtast undanfarna daga. Þannig dróst eistneska hagkerfið saman um 16,6% á öðrum fjórðungi ársins samanborið við sama tímabil í fyrra.
Er þetta mesti efnahagssamdráttur, sem hefur mælst í landinu frá því byrjað var að skrá þar hagtölur árið 1995. Á fyrsta fjórðungi ársins mældist samdrátturinn 15,1% á sama grunni. Ástæðurnar eru einkum mikill samdráttur eftirspurnar og útflutning.
Ef miðað er við fyrsta ársjórðung var samdrátturinn 3,7%. Stjórnvöld gera ráð fyrir að á öllu árinu muni samdrátturinn mælast 15,3% miðað við árið 2008 en það ár mældist 3,6% samdráttur. Árið 2007 var hagvöxtur hins vegar 6,3% og 10,4% árið 2006. Gert er ráð fyrir lítilsháttar hagvexti á næsta ári.
Í gær voru birtar tölur, sem sýndu að hagkerfi Lettlands dróst saman um 19,6% á öðrum ársfjórðungi samanborið við annan ársfjórðung árið 2008. Samdrátturinn var 18% á fyrsta ársfjórðungi. Þar í landi mældist 11,9% hagvöxtur árið 2006 og 10,2% árið 2007 en á síðasta ári var 4,6% samdráttur. Lettar hafa fengið aðstoð frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
Seðlabanki Litháens sagði í síðustu viku, að útlit væri fyrir 19,3% samdrátt hagkerfisins á þessu ári samanborið við 2008. Á næsta ári sé útlit fyrir 5,2% samdrátt.



















