Viðskipti
| AFP
| 13.8.2009
| 10:49
Mikil lækkun verðlags á Írlandi
Vísitala neysluverðs, samanborið við júlí í fyrra, lækkaði um 5,9% á Írlandi í júlí. Meðal annars hefur verð á fatnaði og skóm lækkað um 9,9% á milli mánaða og húsgögn lækkuðu um 1,5% á mánaða. Írland var fyrsta evru-ríkið til þess að fara inn í verðhjöðnun í kjölfar efnahagskreppunnar.
Verðhjöðnun hefur verið óþekkt hugtak á Írlandi frá því árið 1983.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















