Engin áhrif á Símann
mbl.is/Kristinn
Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is
Eins og Morgunblaðið hefur greint frá vilja innlendir kröfuhafar Exista taka félagið yfir og gera breytingar á rekstri þess. Telja þeir m.a. að rekstrarkostnaður, eins og laun, sé of hár.
Ef Exista verður tekið yfir af kröfuhöfum ætti það í grundvallaratriðum ekki að hafa nein áhrif á rekstur dótturfélaganna sem eru sjálfstæðar einingar. Ef Exista færi í gjaldþrot væri það skylda skiptastjóra þrotabúsins að hámarka virði eigna fyrir kröfuhafana. Það þýðir að ekki er útilokað halda þyrfti eignum í nokkur ár og selja þær þegar verðmyndun yrði hagstæð. Eigendur Exista og innlenda kröfuhafa greinir á um þetta.
Lýður Guðmundsson, stjórnarformaður Exista, segir að það sé alveg ljóst að dótturfélög Exista hafi komið betur út úr kreppunni en keppinautarnir. VÍS hafi eitt tryggingafélaga skilað jákvæðri afkomu á síðasta ári og þá standi rekstur Skipta (Símans) traustum fótum. „Í öllum tilvikum hefur stjórnun þessara félaga haft úrslitaþýðingu og þar gegnir Exista lykilhlutverki. Reyndar er staða mála orðin sú að félög í eigu Exista keppa nú nær eingöngu við fyrirtæki í eigu ríkisins eða ríkisbankanna á öllum sviðum,“ segir Lýður.



















