Yfir sjötíu refsiverð mál hjá FME
Það sem af er árinu hefur 71 refsivert mál verið afgreitt hjá Fjármálaeftirlitinu. Í flestum þeirra, 40, hefur þeim lokið með sátt. Tuttugu málum hefur verið vísað til sérstaks saksóknara. Einu máli hefur verið vísað til efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra auk þess sem FME og ríkislögreglustjóri hafa unnið saman að rannsókn annars máls.
Fimm málum hefur verið vísað til ríkissaksóknara og fimm hefur lokið með stjórnvaldssektum.
Rannsóknir á hugsanlegum brotum á lögum á fjármálamarkaði eru stór þáttur í starfsemi Fjármálaeftirlitsins. Sé talið að um brot sé að ræða getur slíkum málum ýmist lokið með stjórnvaldsviðurlögum, sáttum eða að þeim sé vísað til ákæruvalds, að því er segir á vef FME.
Embætti sérstaks saksóknara var sett á fót með sérlögum og tók sérstakur
saksóknari til starfa þann 1. febrúar sl. Embættinu er ætlað að rannsaka grun um
refsiverða háttsemi í aðdraganda og í tengslum við þá atburði er leiddu til
setningar neyðarlaganna svonefndu í október sl. og eftir atvikum fylgja rannsókn
eftir með útgáfu ákæru og saksókn. Embættið leysir af hólmi efnahagsbrotadeild
ríkislögreglustjóra, sem undir eðlilegum kringumstæðum fer með rannsókn sakamála
á fjármálamarkaði.
Um miðjan október 2008 hóf Fjármálaeftirlitið að rannsaka hvort
brotið hefði verið gegn þeim lögum sem það hefur eftirlit með í aðdraganda og
kjölfar hruns viðskiptabankanna þriggja. Meðal annars hafa verið til skoðunar
viðskipti innherja með verðbréf, gjaldeyrisviðskipti, markaðssetning og
fjárfestingar peningamarkaðssjóða, markaðsmisnotkun og verklag við
lánveitingar. Fjármálaeftirlitið hefur nú vísað 20 málum til embættis sérstaks
saksóknara. Fjármálaeftirlitið og embætti sérstaks saksóknara hafa með sér gott
samstarf við rannsókn mála.
Fjármálaeftirlitið hefur vísað fimm málum til
ríkissaksóknara vegna meintra brota á þagnarskyldu 58. gr. laga um
fjármálafyrirtæki.
Fjármálaeftirlitið hefur lagt stjórnvaldssektir á fimm aðila frá áramótum. Sektirnar voru á bilinu 1.000.000 – 10.000.000 kr.
„Mikill tími og fjármagn fer í að uppfylla kröfur stjórnsýsluréttarins um undirbúning og birtingu stjórnvaldsákvarðana. Á það jafnt við þó að ekki sé efnislegur ágreiningur á milli Fjármálaeftirlitsins og málsaðila. Fjármálaeftirlitinu er því heimilt að ljúka máli aðila með sátt hafi hann gerst brotlegur við ákvæði laga sem veita Fjármálaeftirlitinu heimild til beitingar stjórn¬valdssekta. Heimild til sáttar nær þó ekki til meiriháttar brota sem refsiviðurlög liggja við.
Fjármálaeftirlitið hefur lokið 40 málum á árinu með sáttargerð. Þar af eru 36 sáttir vegna þess að útgefendur verðbréfa sem tekin hafa verið til viðskipta á skipulögðum verðbréfamarkaði hafa ekki uppfyllt þá skyldu sína að upplýsa Fjármálaeftirlitið reglulega um innherja og tengda aðila," að því er segir á vef FME.



















