Viðskipti
| mbl
| 15.8.2009
| 5:30
| Uppfært
7:20
Nýr seðlabankastjóri tekur við
bjarni@mbl.isMár Guðmundsson mun taka við embætti seðlabankastjóra næstkomandi fimmtudag, en hann var skipaður í embættið í júnílok. Settur seðlabankastjóri, Svein Harald Øygard, víkur því sæti á sama tíma.
Már starfaði áður í Seðlabankanum um 20 ára skeið, þar af sem aðalhagfræðingur bankans í rúm tíu ár. Þá var hann efnahagsráðgjafi Ólafs Ragnars Grímssonar þegar hinn síðarnefndi var fjármálaráðherra á árunum 1988-1991. Már er með doktorspróf í hagfræði frá Cambridge-háskóla.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















