Viðskipti
| mbl
| 17.8.2009
| 16:46
11,7 milljarða skuldabréfavelta
Heildarvelta með hlutabréf í Kauphöllinni á Íslandi nam aðeins 20,8 milljónum króna í dag. Heildarvelta með skuldabréf var rúmlega 11,7 milljarðar króna.
Af skráðum félögum lækkuðu bréf Bakkavarar mest eða um 7,08 prósent í viðskiptum sem námu samtals tæplega 3,3 milljónum króna. Bréf Marels hækkuðu um 0,55 prósent og bréf Føroya Bank um 0,82 prósent. Úrvalsvísitalan stóð í stað og er 759,77 stig.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















