USB veitir upplýsingar um 4450 viðskiptavini
Svissneski bankinn UBS um veita upplýsingar um 4450 viðskiptavini sína, sem eru grunaðir um að hafa brotið bandarísk skattalög. Er þetta niðurstaða viðræðna bankans við bandarísk stjórnvöld, sem hafa höfðað mál gegn bankanum til að fá þessar upplýsingar.
Bandaríska blaðið The Wall Street Journal segir, að niðurstöður samkomulagsins milli UBS og bandarískra og svissneskra stjórnvalda verði kynntar síðar í dag.
Bandarísk skattayfirvöld grunar að fjölmargir Bandaríkjamenn eigi eignir á svissneskum bankareikningum, sem þeir hafi ekki gefið upp til skatts. Doug Shulman, ríkisskattstjóri Bandaríkjanna, segir í yfirlýsingu að þetta samkomulag muni veita skattayfirvöldum aðgang að upplýsingum, sem þau hafi lengi reynt að fá og búist sé við að mun fleiri viðskiptavinir UBS veiti sjálfviljugir upplýsingar um reikninga sína í kjölfarið.
Talið er að 52 þúsund Bandaríkjamenn eigi reikninga hjá UBS.



















