Enn eftir að bóka tap vegna Straums
Eftir Björgvin Guðmundsson bjorgvin@mbl.is
„Mikil óvissa er við mat á æskilegri varúðarniðurfærslu skuldabréfa. Horfa þarf til nýjustu fjárhagsupplýsinga hverju sinni til að leggja mat á hugsanlegar endurheimtur. Þar sem endanlegt frumvarp um nauðasamninga liggur ekki fyrir er óvissa um afskriftarprósentu vegna skuldabréfa Straums,“ segir Guðmundur.
LSR afskrifar víkjandi skuldir
„Við gerð ársreiknings fyrir síðasta ár voru hlutabréf í Straumi afskrifuð og andvirði víkjandi skuldabréfa fært á afskriftarreikning. Sjóðurinn á ekki önnur skuldabréf á Straum,“ segir Haukur Hafsteinsson, framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins, í svari við sömu spurningu.„Þá lítur sjóðurinn á innlán sem forgangskröfu og ekki hefur verið fært á afskriftarreikning vegna þeirra.“ LSR á samtals fimm milljarða króna kröfu á Straum vegna innlána sem deilur eru uppi um hvort eigi að flokka sem forgangskröfu eða almenna kröfu.
Samtals nema kröfur lífeyrissjóðanna á Straum um 24 milljörðum króna. Þær skiptast þannig að tæpir tíu milljarðar eru almennar kröfur. Samkvæmt endurreisnaráætlun bankans fæst 51% að meðaltali af þeim kröfum til baka haldi reksturinn áfram.



















