Viðskipti
| mbl
| 24.8.2009
| 8:03
FIH tapar viðskiptum á óvissu um eignarhald
Óvissan um hvernig eignarhaldi á danska bankanum FIH verður háttað í framtíðinni, hefur kostað bankann mikil viðskipti. Áætlar forstjóri bankans að FIH hafi tapað allt að 18 milljörðum danskra króna, jafnvirði 440 milljarða íslenskra króna, vegna þessa.
Kaupþing átti FIH en setti öll bréfin í bankanum að veði fyrir 50 milljóna evra láni frá Seðlabanka Íslands nokkrum dögum fyrir fall Kaupþings. Íslensk stjórnvöld reyndu að selja danska bankann í vetur en það tókst ekki.
Henrik Sjøgreen, forstjóri FIH, segir við Økonomisk Ugebrev, að hann telji líklegast að FIH verði seldur erlendum banka eða hópi lífeyrissjóða. Hins vegar sé ekki ljóst hvenær skilanefnd Kaupþings telji heppilegt að selja.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















