Loforð Hreiðars Más er vörn Tchenguiz
Robert Tchenguiz ANDRE CAMARA
Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is
Ágreiningur skilanefndar Kaupþings og bresk-íranska kaupsýslumannsins Roberts Tchenguiz vegna sölu á verslanakeðjunni Somerfield verður leystur fyrir breskum dómstólum, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins.
Ágreiningurinn snýst um 140 milljónir punda, eða tæplega þrjátíu milljarða króna, sem Tchenguiz tók til hliðar vegna sölunnar á Somerfield. Um er að ræða fjármuni sem áttu að renna til Oscatello Investments Ltd. á Jómfrúreyjum, móðurfélags samstæðu í eigu Tchenguiz, og þaðan til Kaupþings. Tchenguiz tilkynnti skilanefndinni í október á síðasta ári að hann myndi ekki ráðstafa söluhagnaðinum af Somerfield til Oscatello heldur til þriggja annarra félaga í sinni eigu. Í framhaldi gekk skilanefndin að veðum og gerði fyrirætlanir Tchenguiz að engu. Dómsmálið snýst því um meintan rétt hans til að taka fjármuni undan veðum.
Skilanefnd Kaupþings telur sig hafa mjög sterkt mál í höndunum, en helsta málsástæða Tchenguiz í málinu er munnlegt loforð frá Hreiðari Má Sigurðssyni, fyrrverandi forstjóra Kaupþings. Tchenguiz heldur því fram að Hreiðar Már hafi fundað með sér á veitingastað í Lundúnum, fyrir hrun bankans, og samþykkt að fjármunir af sölunni á Somerfield rynnu ekki til Kaupþings.
Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins eru miklar efasemdir um hvort Hreiðar hafi getað skuldbundið bankann með munnlegu loforði þar sem meginreglan í bankaviðskiptum séu skriflegir samningar. Einnig verður sönnunarstaðan mjög erfið í slíku máli þar sem engin skrifleg gögn eru til um fundinn. Auk þess vekur það upp grunsemdir að Tchenguiz kom fram með skýringar um fundinn eftir á, löngu eftir að skilanefndin hélt fram rétti sínum í málinu, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Ekki náðist í Hreiðar Má í gær.
Skilanefnd Kaupþings tók sem kunnugt er Oscatello yfir í maí á þessu ári. Yfirtakan var sprottin af 643 milljóna punda útistandandi skuld á yfirdráttarsamningi sem Oscatello fékk hjá Kaupþingi, um er að ræða 136 milljarða króna. Sú skuld er enn ógreidd.



















