Viðskipti
| AFP
| 24.8.2009
| 18:14
| Uppfært
18:35
Maddoff dauðvona?
Kaupsýslumaðurinn Bernard Madoff er dauðvona af völdum krabbameins að því fram kemur í bandarískum fjölmiðlum. Vefmiðlar New York Post og Wall Street Journal hafa þetta í dag eftir ólíkum heimildum og segja Madoff vera með krabbamein á lokastigi.
Talsmaður fangelsisins sem Madoff dvelur nú í vegna umfangsmikilla fjársvika, segir fréttina ónákvæma. Madoff var dæmdur í 150 ára fangesli fyrir margra milljarða dollara fjárfestingasvik sem komu niður á þúsundum manna og stofnana.
New York Post segir Madoff taka um 20 pillur á dag vegna krabbameinsins. „Hann talar um það í sífellu. Honum líður ekki vel,“ hefur blaðið eftir samfanga Maddoffs.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















