Viðskipti
| AFP
| 24.8.2009
| 18:52
Madoff ekki dauðvona
Yfirvöld fangelsismála í Bandaríkjunum hafa vísað á bug fréttum af því að Bernard Madoff sé haldinn banvænu krabbameini. „Bernie Madoff er hvorki dauðvona né hefur verið greindur með krabbamein,“ sagði m.a. í yfirlýsingu frá yfirvöldum.
Dagblöðin New York Post og Wall Street Journal höfðu í dag eftir ólíkum heimildum að Madoff, sem er 71 árs og afplánar 150 ára fangelsisdóm vegna umfangsmikilla fjársvika, væri dauðvona.
M.a. var haft eftir samfanga Madoffs að hann tæki 20 pillur vegna sjúkdómsins en fangelsisyfirvöld segja fréttirnar fullar af rangfærslum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















