Suzuki ódýrastir í rekstri
Suzuki Swift. mbl.is
Sá bíll sem er ódýrastur í rekstri er Suzuki. Næstir þar á eftir koma Honda, Mazda og Toyota. Þetta er niðurstaða könnunar breska bílatryggingafélagsins Warranty Direct. Er þá tekið tillit til allra helstu þátta í rekstri bíls, þ.e. eldsneytiseyðslu, viðgerðarkostnaðar o.fl.
Tryggingafélagið hefur hannað stigakerfi sem mælir kostnaðinn við rekstur bíla. Það byggir á stigagjöf þar sem rekstur meðalbíls fær 112 stig. Stig þar undir segja að reksturinn sé undir meðaltalinu en stig þar yfir gefa hins vegar til kynna að rekstrarkostnaðurinn sé yfir meðaltalinu.
Suzuki bílar fá 31,13 stig í þessari stigagjöf Warranty Direct. Honda er með 33,17 stig. Mazda er með 53,5 stig og Toyota 56,22 stig. Þeir dýrustu eru hins vegar Jeep, með 231,09 stig, Porche 221,39 stig og Land Rover 213,73 stig.
Frá þessu er greint í frétt á danska fréttavefnum Börsen. Ekki er gerður greinarmunur á einstökum tegundum bílaframleiðenda.



















