Viðskipti
| mbl
| 25.8.2009
| 9:15
Bernanke áfram seðlabankastjóri
Barack Obama, Bandaríkjaforseti, mun í dag tilkynna að Ben Bernanke verði áfram seðlabankastjóri næstu fjögur árin. George W. Bush, fyrirrennnari Obamas, skipaði Bernanke í embættið árið 2005.
Embættismenn segja, að Obama muni gefa yfirlýsingu um þetta í bænum Oak Bluffs á eyjunni Martha's Vinyard, þar sem hann er í fríi. Verður yfirlýsingin gefin áður en fjármálamarkaðir verða opnaðir í Bandaríkjunum klukkan 14 að íslenskum tíma.
Blaðið Wall Street Journal hefur eftir Rahm Emanuel, starfsmannastjóra Hvíta hússins, að Obama ætli að skipa Bernanke á ný vegna þess að það sé honum að þakka, að bandaríska hagkerfið hafi staðið af sér fjármálakreppuna.
Bernanke hefur notið mikils stuðnings á Wall Street fyrir þær, stundum óvenjulegu aðferðir, sem hann notaði til að bjarga bankakerfi landsins frá hruni og endurskipuleggja fjármálakerfið.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















