Viðskipti
| mbl
| 25.8.2009
| 14:25
Hlutabréf hækka vestanhafs
Markaðurinn virðist taka vel í endurráðningu Bens Bernanke í stól seðlabankastjóra Bandaríkjanna. BRENDAN MCDERMID
Hlutabréf hækkuðu almennt í verði við opnun markaði í Bandaríkjunum í dag. Því virðist það hækkunarferli sem hófst fyrir um viku síðan ætla að halda áfram eftir að það ferli stöðvaðist í gær.
Í bandarískum vefmiðlum er hækkun hlutabréfa í dag einna helst rakin til upplýsinga um að húsnæðisverð hafi hækkað á öðrum fjórðungi ársins. Þá er jafnframt talið að fjárfestar hafi almennt verið ánægðir með tilkynningu þess efnis að Barack Obama, Bandaríkjaforseti, hefði ákveðið að bjóða Ben Bernanke að sitja annað kjörtímabil í stóli seðlabankastjóra.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















