Viðskipti
| AFP
| 25.8.2009
| 7:17
Hráolíuverð lækkar aðeins á ný
Verð á hráolíu hefur lækkað í rafrænum viðskiptum í Asíu í morgun eftir að hafa hækkað talsvert í gær. Lækkunin í dag skýrist af styrkingu Bandaríkjadals og lækkun á asískum verðbréfamörkuðum.
Verð á hráolíu til afhendingar í október lækkaði um 39 sent í rafrænum viðskiptum á NYMEX markaðnum í New York í morgun. Kostar tunnan nú 73,98 dali.
Í Lundúnum lækkaði Brent Norðursjávarolía um 27 sent og er 73,92 dalir tunnan.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















