Sameinaður olíurisi í Noregi
Norski athafnamaðurinn Kjell Inge Røkke. mbl.is
Ákveðið hefur verið að sameina tvö fyrirtæki í norkum olíuiðnaði, Det Norske oljeselskap og Aker Exploration. Norski athafnamaðurinn Kjell Inge Røkke, sem varð fyrst þekktur sem stærsti útgerðarmaður Noregs, verður stjórnarformaður í sameinaða fyrirtækisins en Erik Haugane verður forstjóri.
Markaðsvirði hins sameinaða olíufyrirtækisins verður um 4,17 milljarðar norskra króna, eða jafnvirði um 89 milljarða íslenskra króna á núverandi gengi. Verður hið sameinaða félag næst stærsta olíufyrirtæki Noregs, næst á eftir Statoil.
Samkvæmt frétt á norska fréttavefnum E24 fá hluthafar í Det Norske oljeselskap, sem er með höfuðstöðvar í Þrándheimi, um 82% hlut í hinu sameinaða félagi. Aker Exploration fær um 18% hlut. Vegna hlutdeildar í báðum félögunum mun eignarhaldsfélag Røkke, Aker ASA, eignast samtals um 30% hlut í hinu sameinaða félagi og verða stærsti hluthafinn.



















