Viðskipti
| AFP
| 26.8.2009
| 20:27
Lítilsháttar hækkun á Wall Street
Helstu hlutabréfavísitölur hækkuðu lítillega á Wall Street í kvöld. Helsta skýringin á hækkun dagsins eru jákvæðar fregnir af bandarískum fasteignamarkaði. Sala á nýjum íbúðum jókst um tæp 10% í júlí og er þetta fjórði mánuðurinn í röð þar sem sala eykst á nýju húsnæði í Bandaríkjunum.
Dow Jones vísitalan hækkaði um 0,05% og er lokagildi hennar 9.544,35 stig. Nasdaq hækkaði um 0,2% og Standard & Poor's 500 hækkaði um 0,01%.
Hlutabréf deCode hækkuðu um 5,56% og er lokagildi þeirra 57 sent á hlut.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















