Draumfara reynsluflogið í árslok
Tölvumynd af draumfaranum í litum Icelandair. mbl.is/boeing
Draumfara, nýrri tegund farþegaflugvéla flugvélaframleiðandans Boeing, verður reynsluflogið undir lok ársins og nú er gert ráð fyrir að fyrstu vélarnar verði afhentar nýjum eigendum á síðari hluta næsta árs.
Icelandair hefur gengið frá samningum um kaup á fjórum vélum af þessari tegund, sem nefnast Boeing 787 Dreamliner. Ekki er ljóst hvenær félagið fær fyrstu vélarnar afhentar.
Upphaflega var áætlað að draumfaranum yrði reynsluflogið um mitt ár 2007 en þær áætlanir hafa ekki gengið eftir af ýmsum ástæðum.
Boeing 787 er stóra farþegaflugvélin sem smíðuð verður að mestu úr samsettum plasttrefjaefnum, og segir Boeing að það geri hana léttari, sparneytnari og ódýrari í viðhaldi.



















