Viðskipti
| mbl
| 27.8.2009
| 17:00
Hagnaður hjá N1
Hagnaður af rekstri N1 var 474 milljónir króna fyrri hluta ársins en á sama tímabili á síðasta ári var 98 milljóna króna hagnaður af rekstrinum.
Rekstrartekjur félagsins námu 17,2 milljörðum króna samanborið við 19,7 milljarða á sama tímabili árið 2008. Hagnaður fyrir afskriftir og leigugjöld nam 1897 milljónum samanborið við 2051 milljónir fyrir sama tímabil í fyrra. Fjármagnsliðir voru neikvæðir um 587,8 milljónir og voru einnig neikvæðir um 1281 milljónir króna á sama tímabili árið 2008.
Í tilkynningu segir, að rekstrarhorfur út árið séu áfram erfiðar vegna óstöðugleika í efnahagsmálum. Kjarnastarfsemi félagsins hafi gengið vel á árinu og reiknað sé með að afkoma ársins verði betri en árið 2008.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















