Viðskipti
| mbl
| 27.8.2009
| 20:39
Hagnaður hjá TM
Hagnaður af rekstri Tryggingamiðstöðvarinnar fyrri hluta ársins nam 491 milljón króna samanborið við 2519 milljóna króna tap á sama tímabili í fyrra. Hagnaður af vátryggingastarfsemi var 27 milljónir fyrir skatta samanborið við 29 milljóna hagnað á sama tímabili 2008.
Í tilkynningu TM segir, að markmið um að bæta afkomu eignatrygginga og frjálsra ökutækjatrygginga hafi náðst þegar á fyrri hluta ársins. Afkoma skipa-, slysa- og ábyrgðatrygginga á tímabilinu valdi hins vegar vonbrigðum. Unnið sé markvisst að úrbótum og mun sú vinna halda áfram þar til jafnvægi hefur náðst. Árangur þeirrar vinnu ætti að verða ljós á fyrsta fjórðungi næsta árs.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















