Icelandair gefur Draumfara ekki upp á bátinn
Draumfarinn í litum Icelandair. mbl.is/boeing
Áætlanir Icelandair um kaup á fjórum Boeing 787 Dreamliner þotum ásamt kauprétti að öðrum þremur, eru óbreyttar að sögn Sigþórs Einarssonar, aðstoðarforstjóra hjá Icelandair Group.
Hann segir þó ítrekaðar tafir á afhendingu Dreamliner-þotanna eða Draumfara eins og þær hafa verið kallaðar upp á íslensku, ákveðið áhyggjuefni, en engu að síður sé verðmætt að eiga þessar pantanir.
Samkvæmt nýjustu áætlun Boeing-verksmiðjanna er gert ráð fyrir að afhending fyrstu vélanna hefjist nú á síðasta ársfjórðungi 2010. Sigþór segir að tafirnar á afhendingu 787 þotanna til Icelandair séu orðnar um tvö og hálft ár og miðað við síðustu áætlanir verksmiðjanna megi ljóst vera að afhending á fyrstu þotunni til Icelandair verið ekki fyrr en 2013.
Sigþór segir þó félagið ætla að halda ótrautt áfram með fyrri áætlanir. Þegar hefur verið tryggð leiga á fyrstu vélinni sem félagið fær afhenta, og hann kveðst ekki gera ráð fyrir að sjá Dreamliner-þoturnar inn í leiðakerfi Icelandair til að byrja með heldur reiknar hann með að þær verði einnig leigðar í byrjun.



















