Segir engan vafa til staðar um eignarhald
Lýður Guðmundsson mbl.is/Golli
eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is
Lýður Guðmundsson, stjórnarformaður Exista, segir að yfirtökutilboð BBR ehf. og samþykki annarra hluthafa Exista við tilboðinu haldi þrátt fyrir að fyrirtækjaskrá hafi úrskurðað að hlutafjáraukning í Exista hafi verið ólögmæt. BBR er í eigu Lýðs og Ágústs bróður hans. BBR ehf. voru skyldaðir til að gera öðrum hluthöfum yfirtökutilboð eftir hlutafjáraukningu í félaginu í desember.
BBR ehf. skráði sig fyrir nýjum hlutum í Exista í desember síðastliðnum og greiddi einn milljarð króna fyrir fimmtíu milljarða að nafnverði, sem þýðir að félagið greiddi aðeins tvo aura fyrir hvern hlut. Fyrirtækjaskrá úrskurðaði hinn 29. júní síðastliðinn að hlutafjáraukningin hefði verið ólögmæt. „Okkar mat er að þetta hafi verið ólögmæt hlutafjáraukning og hana hafi borið að færa til baka,“ segir Skúli Jónsson hjá fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra. Stofnunin hefur þegar fært hlutaféð til baka, í samræmi við úrskurð sinn, og er það núna skráð eins og það var áður en tilkynnt var um hlutafjáraukninguna.
Það sem gerir málið hins vegar snúið er að í millitíðinni, áður en fyrirtækjaskrá úrskurðaði um ólögmæti hlutafjáraukningarinnar, gerði BBR ehf. öðrum hluthöfum í Exista yfirtökutilboð. Meðal þeirra sem tóku tilboði BBR ehf. var Nýi Kaupþing banki, en bankinn hafði leyst til sín hlut Ágústs og Lýðs Guðmundssona í Exista. Áður hafði hlutafjáraukningin þynnt hlut bankans úr rúmum 45% niður í 10,4%, en hlutanna var aflað á grundvelli fullnustugerðar.
Nýi Kaupþing banki fór ekki með neinn eignarhlut á aðalfundinum í gær. „Bankinn seldi sinn hlut í félaginu í yfirtökutilboðinu í desember. Það er engin spurning um eignarhaldið á bréfunum. Við vorum neyddir í þetta yfirtökutilboð og öllum var frjálst að taka því eða hafna. Bankinn kaus að taka því, við fengum bréfin og greiddum fyrir þau,“ segir Lýður. Aðspurður segir hann að það skipti engu máli þótt yfirtökutilboðið hafi verið gert eftir hlutafjáraukninguna.
Ekki náðist í gær í Finn Sveinbjörnsson, bankastjóra Nýja Kaupþings banka, til að fá svör við því hvort bankinn hygðist leita réttar síns í málinu.



















