Verðbólgan nú 10,9%

Verðbólga á ársgrundvelli er nú 10,9% samkvæmt vísitölu neysluverðs.
Verðbólga á ársgrundvelli er nú 10,9% samkvæmt vísitölu neysluverðs. mbl.is/Golli

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í ágúst  hækkaði um 0,52% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði  um 0,68% frá júlí.

Að sögn Hagstofunnar hefur vísitala neysluverðs hækkað um 10,9% sem er minnsta verðbólga frá því í mars á síðasta ári. Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði um 16,1%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,1% sem jafngildir 8,6% verðbólgu á ári (13,3% fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Hagstofan segir, að  sumarútsölum sé víða lokið og hækkaði verð á fötum og skóm um 5,9% (vísitöluáhrif 0,32%). Verð dagvara hækkaði um 1,1% milli mánaða (0,19). Kostnaður vegna eigin húsnæðis lækkaði um 0,8% (-0,10%) og voru áhrif af lækkun markaðsverðs -0,06% en af lækkun raunvaxta -0,04%.

Verð á bensíni og díselolíu hækkaði um 3,5% (0,18%). Verð á húsgögnum lækkaði um 3,8% (-0,10%) og verð nýrra bíla lækkaði um 4,4% (-0,16%). 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK