Viðskipti
| mbl
| 27.8.2009
| 15:23
Vextir lækka í Danmörku
Danski seðlabankinn tilkynnti í dag að stýrivextir bankans yrðu lækkaðir um 0,1 prósentu í 1,35% frá og með morgundeginu. Er þeta gert vegna þess að seðlabankinn hefur þurft að kaupa erlendan gjaldeyri vegna aukinnar eftirspurnar eftir dönsku krónunni.
Danir eru ekki á evrusvæðinu en danski seðlabankinn miðar gengi krónunnar við evru. Þá fylgir seðlabankinn vaxtaákvörðunum Seðlabanka Evrópu og er sjaldgæft að hann taki einhliða ákvarðanir eins og þessa í dag.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















