Føroya Banki á athugunarlista
Kauphöllin á Íslandi hefur ákveðið að færa hlutabréf færeyska bankans, Føroya Banka, á athugunarlista frá og með deginum í dag. Er það gert vegna tilkynningar frá Føroya Banka í gær um að stjórn bankans hefði ákveðið að gera tilboð í hlut af danska bankanum Fionia Bank.
Í gær var frá því greint að stjórn Føroya Banka hefði ákveðið að gera tilboð í hluta af eigum og rekstri Fionia Bank, sem danska ríkið yfirtók fyrir nokkru. Leggur Føroya Banki tilboðið fram í samvinnu við Lån & Spar Bank.
Føroya Banki er skráður í Kauphöllinni á Íslandi og einnig í kauphöllinni í Kaupmannahöfn. Bankinn er með um 40% markaðshlutdeild í Færeyjum en fram hefur komið í tilkynningu frá honum að stefnt sé að því að auka umsvifin á fleiri mörkuðum.
Danska ríkisstofnunin Finansiel Stabilitet A/S yfirtók Fionia Banka í febrúar en bankinn var þá sá 11. stærsti í Danmörku.



















