Viðskipti
| mbl
| 31.8.2009
| 16:56
Hagnaður hjá HS Orku
Hagnaður HS Orku nam 184 milljónum króna á fyrri hluta ársins en var 979 milljónir króna á sama tímabili í fyrra. Þegar tekið er tillit til tekna og gjalda sem færð eru á eigið fé er heildarhagnaður tímabilsins 612 milljónir samanborið við 8582 milljónir á sama tímabili árið áður.
Fyrirtækið segir, að lækkun heildarhagnaðar skýrist af því að á árinu 2008 voru rekstrarfjármunir félagsins endurmetnir til gangvirðis.
Hitaveitu Suðurnesja hf. var á árinu 2008 skipt í tvö félög HS Orku hf. og HS Veitur hf. sem tók yfir einkaleyfisstarfsemi Hitaveitu Suðurnesja.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















