Viðskipti
| mbl
| 31.8.2009
| 16:49
| Uppfært
17:40
Hagnaður hjá Opnum kerfum Group
20 milljóna króna hagnaður var af rekstri Opinna kerfa Group á fyrri hluta ársins samanborið við 318 milljónir króna á sama tímabili á síðasta ári. Eiginfjárhlutfall félagsins er 35,5% og arðsemi eigin fjár á ársgrundvelli 3,1% sem er lægri en á fyrri hluta síðasta árs.
Heildar rekstrartekjur Opinna kerfa Group á fyrri helmingi ársins 2009 voru 3636 milljónir króna, samanborið við 4806 milljónir króna á sama tímabili í fyrra. 48 milljóna króna tap var á rekstrinum fyrir afskriftir og fjármagnsliði samanborið við 187 milljónir í hagnað árið áður. Forráðamenn félagsins gera ráð fyrir að rekstur félagsins verði þungur á yfirstandandi ári.
Opin kerfi Group samanstendur í af móðurfélaginu og einu rekstrarfélagi sem er Kerfi AB í Svíþjóð.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















