Viðskipti
| mbl
| 31.8.2009
| 7:23
Nordea kaupir Fionia Bank
Norræni bankinn Nordea mun kaupa danska bankann Fionia Bank, sem danska ríkið yfirtók í febrúar. Með í kaupunum fylgja 29 útibú og 400 starfsmenn. Kaupverðið er 900 milljónir danskra króna, jafnvirði nærri 22 milljarða íslenskra króna.
Fionia Bank er með höfuðstöðvar í Óðinsvéum og starfar aðallega á Fjóni. Fram kemur í tilkynningu frá Nordea í dag, að hluti rekstrar Fionia, sem vandræði bankans stöfuðu af, verður áfram hjá dönsku ríkisstofnuninni Finansiel Stabilitet A/S.Nordea yfirtekur reikninga 75 þúsund einstaklinga og 9500 fyrirtækja hjá Fionia og þar með útlán sem nema samtals 6,5 milljörðum danskra króna. Norea mun endurfjármagna bankann.
Þrjú tilboð voru lögð fram í rekstur Fionia, þar á eitt frá Færeyjabanka í samvinnu við Lån & Spar Bank A/S.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















