Viðskipti
| Morgunblaðið
| 1.9.2009
| 7:10
| Uppfært
7:29
Landsbankinn stærstur í Teymi eftir aðalfund
Aðalfundur Teymis eftir endurreisn og nauðasamninga verður haldinn á morgun. Teymi á og rekur m.a. Vodafone á Íslandi, Kögun, Skýrr og EJS. Eftir fundinn taka kröfuhafar félagsins formlega við stjórnartaumunum í Teymi en Nýi Landsbankinn verður stærsti hluthafinn með 62,16 prósenta hlut.
Eignarhaldsfélagið Vestia, dótturfélag Nýja Landsbankans, mun fara með eignarhlutinn í Teymi fyrir hönd bankans.
Ekki liggur fyrir hvort breytingar verða gerðar á framkvæmdastjórn Teymis eftir aðalfund en ákvarðanir um slíkt verða í verkahring nýrrar stjórnar. Nýlega átti forstjóri félagsins, Árni Pétur Jónsson, frumkvæði að því að eigin laun yrðu lækkuð umtalsvert.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















