Nafni Eimskips verði breytt í A1988

mbl.is

Á næsta hluthafafundi Eimskipafélags Íslands, sem verður haldinn 8. september nk., verður lagt til að breyta nafni félagsins í A1988 hf. Þetta er tillaga stjórnar félagsins.

Fram kemur til tilkynningu frá Eimskip að einnig verði fjallað um tillögu stjórnar Eimskipafélags Íslands um staðfestingu á samningum vegna fjárhagslegrar endurskipulagningar félagsins.

„Hluthafafundur Hf. Eimskipafélags Íslands haldinn 8. september 2009 staðfestir heimild til stjórnar um að framselja allar eigur félagsins til skiparekstrar til Eimskip Ísland ehf. og hækka þannig hlutafé þess félags og fá sem gagngjald hluti í Eimskip Ísland ehf. Jafnframt staðfestir fundurinn heimild til stjórnar félagsins að framselja framangreinda hluti í Eimskip Ísland ehf., ásamt öllum öðrum eignum félagsins að frátöldum 51% hlut í Eimskip Tango ehf., til félagsins L1003 ehf. gegn afhendingu hluta í L1003 ehf.,” segir í tilkynningu frá félaginu.

Meðfylgjandi er greinargerð þar sem segir:

„Framangreind tillaga er gerð sem liður í fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins í framhaldi af samþykkt nauðasamnings félagsins sem staðfestur var þann 28. ágúst 2009 af Héraðsdómi Reykjavíkur. Í samningum sem gerðir voru í tengslum við nauðasamningsfrumvarp félagsins var gert ráð fyrir að skiparekstur félagsins yrði færður til nýs félags, L1003 ehf. (sem síðar mun fá nafnið Eimskipafélag Íslands ehf.).

Samkvæmt nauðasamningi félagsins munu kröfuhafar þess fá hluti í L1003 ehf. sem greiðslu á kröfum sínum á hendur félaginu.

Þeim ráðstöfunum sem hér er fjallað um eru gerð gerð ítarleg skil í greinargerð fyrir kröfuhafa sem fylgdi nauðasamningsfrumvarpi félagsins. Með tillögu þessari er staðfest heimild stjórnar til að ganga frá þeim samningum sem kveðið er á um nauðasamningi félagsins.“


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK