Ný stjórn Nýja Kaupþings
Ný stjórn Nýja Kaupþings hefur verið skipuð í kjölfar þess að skrifað var undir samning bankans, ríkisins og skilanefndar Kaupþings um að skilanefndin geti fyrir hönd kröfuhafa bankans eignast 87% hlutafjár á móti ríkinu.
Skilanefnd Kaupþings hefur tilnefnt tvo stjórnarmenn sem munu frá deginum í dag hafa sama atkvæðisrétt í stjórn Nýja Kaupþings. Fjórir stjórnarmenn eru tilnefndir af ríkinu. Ný stjórn mun leiða starf bankans þar til endanlegt eignarhald liggur fyrir.
Í nýrri stjórn bankans sitja: Erna Bjarnadóttir nýr stjórnarformaður, Helga Jónsdóttir, Drífa Sigfússdóttir, Jónína Sanders, Jóhannes Rúnar Jóhannsson og Theodór S. Sigurbergsson. Úr stjórn hverfa Hulda Dóra Styrmisdóttir stjórnarformaður og Auður Finnbogadóttir.
Haft er eftir Huldu Dóru í tilkynningu frá bankanum, að fjármögnun bankans af hálfu ríkisins sé nú lokið og samningar liggi fyrir um uppgjör á milli gamla og nýja bankans. Á þessum tímamótum telji þær Auður Finnbogadóttir vera lokið því verkefni sem þeim var falið fyrir hönd ríkisins.



















