Viðskipti
| AFP
| 4.9.2009
| 12:45
Air France boðar uppsagnir
Franska flugfélagið Air France mun fækka störfum um 1.500 á næstunni en ástæðan er samdráttur bæði í farþega- og fraktflugi. Í tilkynningu frá félaginu kemur fram að það vonist til þess að geta kynnt viðamiklar hagræðingaraðgerðir í næsta mánuði.
Talsmaður Air France sagði í samtali við AFP fréttastofuna að hvorki flugmenn né flugvirkjar muni missa vinnuna.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















