Viðskipti
| AFP
| 8.9.2009
| 8:26
Atvinnuleysi eykst meðal ungmenna í Sviss
Atvinnuleysi mældist 3,8% í Sviss í ágúst en það var 3,7% í júlímánuði. Atvinnuleysi jókst mikið meðal ungs fólks á milli mánaða, samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Sviss.
Alls eru 150. 831 Svisslendingur skráður á atvinnuleysisskrá sem er 5.467 fleiri en í júlí. Mest er aukningin í aldurshópnum 15-24 ára en í þessum hópi jókst atvinnuleysið úr 4,6% í 5,3% á milli mánaða. Hefur þeim fjölgað gífurlega á einu ári sem eru skráðir án atvinnu í þessum aldurshópi.
Stjórnvöld í Sviss gera ráð fyrir því að atvinnuleysi mælist 3,8% í ár en það mældist 2,6% í fyrra.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















