Harma að skilanefndir bankanna standi ekki við samning
Félag kvenna í atvinnurekstri (FKA) harmar að skilanefndir ríkisbankanna skuli ekki virða þann samstarfssamning sem , FKA, Viðskiptaráð Íslands og Samtök atvinnulífsins ásamt fulltrúum allra stjórnmálaflokkanna skrifuðu undir í vor þar sem stefnt er að því að auka hlut kvenna í atvinnulífinu með samstilltu átaki.
Í ljósi frétta um nýskipaðar stjórnir þar sem ríkisbankarnir eru með stærstu hluthöfum þá vekur það furðu að konur séu ekki á meðal þeirra sem skipaðar hafa verið í þessar nýju stjórnir, að því er segir í ályktun frá FKA.
„Það er hagsmunamál þjóðfélagsins að nýta krafta beggja kynja og skýlaus krafa að konum verði falin aukin ábyrgð á öllum vígstöðvum við endurreisn þjóðfélagsins, Ísland þarf að nýta sér þann mannauð sem býr í konum.
Um leið og samstarfssamningurinn var undirritaður kynnti CreditInfo niðurstöður úr skýrslu sem unnin var fyrir þetta verkefni sem sýndi að til að auka hlutdeild kvenna í atvinnulífinu, þarf fyrst að auka hlutdeild kvenna í stjórnum fyrirtækja. Við eigum langt í land með að ná þessu markmiði þar sem hlutdeild kvenna í stjórnum er einungis ríflega 15%, samt sýni rannsóknir ítrekað að fyrirtæki þar sem bæði kyn sitja í stjórn eru ólíklegri til að lenda í alvarlegum vanskilum. Er það miður að stjórnvöld skuli ekki nýta sér þau tækifæri sem koma upp nú við endurreisn atvinnulífsins til þess að auka hlutdeild kvenna," að því er segir í ályktuninni.
|
|
Ályktun FKA í heild |



















