Veita upplýsingar um skattaundanskot
Danir undirrituðu í dag samninga um upplýsingaskipti á sviði skattamála við Turks & Caicos eyjar og Anguilla. Hin norrænu ríkin stefna að því að undirrita samninga við Turks & Caicos eyjar og Anguilla á næstunni. Samningarnir um upplýsingaskipti eru liður í herferð sem miðar að því að efla hnattrænar aðgerðir gegn alþjóðlegum skattsvikum.
Í tilkynningu kemur fram að samningurinn mun veita norrænum skattayfirvöldum ásamt stjórnvöldum á Turks & Caicos eyjum aðgang að upplýsingum um hvern þann aðila sem reynir að komast hjá greiðslu tekjuskatts og/eða fjármagnstekjuskatts.
Samningurinn mun einnig fela í sér upplýsingagjöf um eignir sem ekki hafa verið gefnar upp í heimalandinu. Meðal annars er þar um að ræða upplýsingar um eignarhald á fyrirtækjum, stjórnarmenn og þá sem þiggja arðgreiðslur frá eignarhaldsfélögum, auk upplýsinga í vörslu banka og fjármálastofnana.
Samningarnir eru hluti af norrænu átaksverkefni sem miðar að því að gera samninga um upplýsingaskipti á sviði skattamála við fjármálamiðstöðvar víða um heim og hafa Norðurlöndin þegar gert svipaða samninga við eyjarnar Mön, Jersey og Guernsey, Cayman eyjar, Bermúda og bresku Jómfrúareyjarnar.



















