Áttum að hætta árið 2005

Jón Ásgeir Jóhannesson.
Jón Ásgeir Jóhannesson. mbl.is/Ómar

Jón Ásgeir Jóhannesson segir í viðtali við Viðskiptablaðið, sem kemur út á morgun, að hann og viðskiptafélagar hans hefðu átt að hætta þegar þeir keyptu bresku verslunarkeðjuna Big Food Group árið 2005 og halda sig við verslun.

„Svona eftir á að hyggja hefði það verið skynsamlegast. Þá hefðum við verið í góðum málum í dag,“ segir Jón Ásgeir við blaðið. Hann segir að Big Food félögin Iceland og Booker gefi 35 milljarða í frjálst sjóðsstreymi á þessu ári.

„Hefði Baugur haldið sínum ráðandi hlut í þessum félögum þá hefði verið hægt að standa undir skuldum Baugs auðveldlega enda var skuldsetning félagsins 2005 heilbrigðari þá en síðar varð með auknum fjárfestum í ólíkum geirum sem við hefðum betur látið vera."

Hann bætir við að fjárfesting Baugs í FL Group hafi verið mikil mistök og þeir hefðu ekki átt að vera að vasast í svona mörgu og í svona ólíkum geirum.

Í viðtalinu segir Jón Ásgeir, að hann hafi ekki verið boðaður til yfirheyrslu hjá opinberum aðilum í kjölfar bankahrunsins og segist ekki eiga von á slíku.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK