Commerzbank skilar ríkisstyrkjum
Commerzbank, stærsti banki Þýskalands, tilkynnti í dag að hann muni borga til baka milljarða evra, sem bankinn fékk í styrki hjá þýska ríkinu vegna fjármálakreppunnar. Þá ætlar bankinn að endurskoða reglur um launagreiðslur starfsmanna.
Alls fékk Commerzbank að gefa út 15 milljarða evra skuldabréf með ríkisábyrgð. Bankinn skilaði 5 milljörðum í ágúst og mun skila öðrum 5 milljörðum nú. Martin Blessing, forstjóri bankans, sagði í dag að bankinn muni ekki gefa út fleiri ríkistryggð bréf.
Þá sagði Blessing, að verið væri að móta nýja launastefnu innan bankans þar sem bónusar verða greiddir miðað við hvort verkefni skila árangri í langan tíma. Verður stjórnendum í ríkara mæli greitt með hlutabréfum, sem þeir þurfa að eiga í ákveðinn tíma.
Þýska ríkið á nú 25% hlut í Commerzbank. Í staðinn fékk bankinn fjárhagsaðstoð vegna fjármálakreppunnar og einnig vegna yfirtöku á Dresdner Bank. Í kjölfarið var sett hálfrar milljónar evra þak á árslaun stjórnenda bankans, jafnvirði 90 milljóna króna.
Þá lánaði þýska ríkið Commerzbank 18,2 milljarða evra.
FL Group átti um tíma hlut í Commerzbank. Mest átti íslenska félagið 4,25% á árinu 2007 en seldi mestöll hlutabréf sín í byrjun ársins 2008 með talsverðu tapi.
Fram kemur komið, að Commerzbank tapaði miklu fé þegar íslensku bankarnir féllu sl. haust.



















