Viðskipti
| AFP
| 9.9.2009
| 18:01
Óbreytt olíuframleiðsla
OPEC, samtök olíuútflutningsríkja, eru sögð hafa náð samkomulagi um að halda olíuframleiðslu óbreyttri. Þetta er haft eftir olíumálaráðherra Kúveit, sjeiknum Ahmad Abdullah
al-Sabah, fyrir fund samtakanna í kvöld.
Fram kemur á vef AFP-fréttastofunnar að meirihluti ráðherrana, sem sækja fundinn, hafi almennt verið jákvæðir gagnvart stöðu olíumarkaðarins. Þeir segja að verð á hráolíu sé viðunandi og að það sé ólíklegt að dregið verði úr framleiðslu á næstunni.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















