Candy-bræður á ferð og flugi
Candy-bræðurnir, bresku fasteignafjárfestarnir og fyrrum viðskiptafélagar Kaupþing banka, láta ekki deigan síga þrátt fyrir hrunið á fasteignamarkaði í Bretlandi og ýmsar hremmingar aðrar. Um þá er fjallað í mikilli grein á Bloomberg -viðskiptavefnum og hvernig þeir eru á ferð og flugi á einkaþotu sinni milli ýmissa verkefna en heimili þeirra er í Monakó þar sem þeir búa í 1626 fermetra og 30 herbergja toppíbúð.
Candy-bræður, Nic sem er 36 ára, og Chris sem er árinu yngri, líta á toppíbúðina og eins snekkju sem þeir eru með í smíðum, sem sýnishorn fyrir lífstíl þann sem þeir geti boðið ofurríkum viðskiptavinum sínum. Sjálfir eru þeir ekki fæddir með silfurskeið í munni, heldur aldir upp í millistéttarfjölskyldu í úthverfi. Þeir náðu hins vegar að nýta sér eignabóluna miklu, og byggðu og þróuðu glæsihýbýli fyrir hina forríku í London á tímum þegar fasteignafermetrinn fór úr 2000 pundum árið 2001 í 6000 pund 2008.
Þá kom hrunið. Fasteignavísitala FTSE féll um 67% frá því í lok 2006 til septemberbyrjunar í ár, og hlutabréf í Barrat Developsment Plc, stærsta íbúðabyggjanda Bretlands í magni talið, féll um um 80%. Eftir að Lehman Brothers fjárfestingabankinn féll í september 2008 voru nánast engar glæsiíbúðir seld í hæsta verðflokknum, þ.e. íbúðir sem kosta 10 milljónir punda eða meira.
Á fyrstu sjö mánuðum þessa árs hafa selst 26 íbúðir í þessum verðflokki samanborðið við 75 allt árið í fyrra og 119 árið 2007. Í heildina litið hafa íbúðir í þessum hæsta verðflokki fallið um 25% miðað við miðjan ágúst og frá því að verðið var hæst 2008. Vegna þess að pundið hefur þar fyrir utan fallið um 18% miðað við dollar frá seinnihluta 2007 til ágústloka í ár, geta erlendir kaupendur nú fengið þessar glæsiíbúðir á nánast hálfvirði þess sem var þegar verðbólan var sem hæst.
Misstigu sig með Kaupþingi í Beverly Hill
Nick og Chris Candy hafa ekki farið varhluta af hruninu, og þurft að hætta við nokkur stór fasteignaverkefni. Bloomberg segir þó að bræðurnir hafi misreiknað sig verst þegar þeir tóku ákvörðun um að kaupa 8 ekru land í Beverly Hills í Kaliforníu árið 2007. Viðskiptafélagi í kaupunum - einu fjárfestingu CPC Group í Bandaríkjunum - var Kaupþing banki.
Verkefnið nefndist Project Lotus LLC og Kaupþing greiddi 500 milljónir dala fyrir eignina, 15 sinnum meira en hún hafði verið seld á þremur árum áður. Þegar Kaupþing hrundi og var þjóðnýttur í október 2008, var hlutur CPC Group í uppnámi en Candy-bræður segja samkvæmt grein Bloomberg að hann hafi numið um 25 milljónum dollara.
Í október í fyrra gjaldféll 360 milljón dollara lán Credit Suisse Group í Zürich sem Project Lothus gat ekki staðið skil á, og það hefur síðan leitt til málaferla gegn CPC af hálfu fjárfesta sem skrifað höfðu sig á lánið.Bræðurnir freista þess nú að semja um endurfjármögnun verkefnisins.
Bloomberg segir að framtíð Candy-bræðra velti á byggingaframkvæmd sem nefnist One Hyde Park, en þar er um að ræða 86 íbúða byggingu í hæsta gæðaflokki við Knightsbridge, um 300 metra frá Harrods versluninni. Viðskiptafélagi Candy-bræðra þar er forsætisráðherra Katar, sheikinn Hamad bin Jassim bin Jaber Al-Thani, bróðir Mohamed Bin Khalifa Al Thani sem talsvert hefur komið hér við sögu í tengslum við hrun Kaupþings.
Sjá frásögn Bloomberg




















