Viðskipti
| mbl
| 10.9.2009
| 11:04
Stýrivextir Englandsbanka óbreyttir
Peningastefnunefnd Englandsbanka tilkynnti í dag, að stýrivextir bankans yrðu áfram 0,5% um sinn. Vextirnir hafa aldrei í sögu bankans verið lægri en þeir eru um þessar mundir.
Í yfirlýsingu bankans segir, að peningastefnunefndin hafi samþykkt í atkvæðagreiðslu að halda stýrivöxtum bankans óbreyttum. Þá muni bankinn halda áfram aðgerðum til að örva efnahagslífið en vísbendingar eru um að brátt sjái fyrir endann á langvinnu samdráttarskeiði.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















