Viðskipti
| mbl
| 15.9.2009
| 20:11
Bandarísk hlutabréf hækkuðu
Úr kauphöllinni á Wall Street. CHIP EAST
Hlutabréf hækkuðu í dag í kauphöllinni á Wall Street og hafa hlutabréfavísitölur ekki verið hærri á þessu ári. Er þetta rakið til talna, sem sýndi að smásala jókst um 2,7% í ágúst, einkum vegna átaks bandaríska ríkisins til að örva sölu á nýjum bílum.
Þá sagði Ben Bernanke, seðlabankastjóri, að svo virtist sem samdráttarskeiðinu, því langvinnasta frá fjórða áratug síðustu aldar, væri lokið.
Dow Jones hlutabréfavísitalan hækkaði um 0,58% og er 9682 stig. Nasdaq vísitalan hækkaði um 0,52% og er 2102 stig. S&P vísitalan hækkaði um 0,31% og er 1052 stig. Bréf deCODE lækkuðu hins vegar um 4,7% og er gengi þeirra rúmlega 51 sent.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















