Kröfuhafar ósáttir við sölu Bakkavarar
Eftir Þorbjörn Þórðarson
thorbjorn@mbl.is
Sala á hlut Exista í Bakkavör til eignarhaldsfélags Bakkabræðra var gerð með fyrirvara um samþykki lánveitanda, en svo virðist sem slíks samþykkis hafi ekki verið aflað.
„Við erum ekki sáttir við þetta og þetta var gert án samráðs við okkur,“ segir Haukur Hafsteinsson, framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins (LSR), um sölu á Bakkavör frá Exista sem tilkynnt var að væri lokið fyrir helgi, en lífeyrissjóðurinn er stór kröfuhafi Exista. Hinn 10. október í fyrra ákvað stjórn Exista að selja allan hlut félagsins í Bakkavör til félagsins ELL 182 ehf., sem er eignarhaldsfélag í eigu bræðranna Ágústs og Lýðs Guðmundssona. Sala á félaginu var gerð með fyrirvara um samþykki lánveitenda, eins og lífeyrissjóðanna.
Endurspeglar ekki verðmæti
„Ég held að þetta sé óheppilegt fyrir það ferli sem verið hefur til skoðunar,“ segir Haukur. Hann segir að söluverðið fyrir hlut Exista í Bakkavör endurspegli ekki raunverulegt verðmæti félagsins. Um var að ræða 39,62 prósent af heildarhlutafé Bakkavarar á genginu 9,79 krónur og söluverðið 8,4 milljarðar króna. Aðspurður segir Haukur að lífeyrissjóðurinn sé að skoða réttarstöðu sína vegna málsins.LSR er ekki eini kröfuhafi Exista sem er óánægður með söluna á hlutnum í Bakkavör. Mikil gremja er meðal annarra kröfuhafa sem rætt var við. Eftir því sem næst verður komist öfluðu þeir Ágúst og Lýður ekki samþykkis stórra kröfuhafa áður en eignarhlutur Exista í Bakkavör var seldur. Kröfuhafarnir hafa jafnframt ekki fengið að sjá kaupsamning vegna sölunnar á hlutnum því liggur ekki fyrir hvernig kaupin voru fjármögnuð.



















