Seldu sér Bakkavör þvert á rétt innlendra kröfuhafa
Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is
Ágúst og Lýður Guðmundssynir létu Exista, sem er að mestu í óbeinni eigu kröfuhafa í dag, fjármagna kaup þeirra sjálfra á 39,62 prósent hlut Exista í Bakkavör með skuldaviðurkenningu upp á 8,4 milljarða króna. Ekki liggur fyrir hvenær gjalddaginn á láninu er en þetta þýðir að bræðurnir lögðu ekkert eigið fé fram við kaupin.
Létu hjá líða að afla samþykkis
Í stuttri orðsendingu til lánveitenda Exista segjast bræðurnir vera tilbúnir að skoða það að láta kaupin ganga til baka ef endurskipulagning Exista gengur eftir og þeir fá að halda 30 prósenta hlut í Exista og yfirráðum í félaginu. Bréfið, sem er undirritað af fjármálastjóra Bakkavarar, var sent á lánveitendur Exista fyrir helgi.Salan á Bakkavör var gerð með fyrirvara um samþykki lánveitenda Exista en Ágúst og Lýður létu hjá líða að afla slíks samþykkis.
Um er að ræða brot á lánasamningum Exista (e. syndicated loan) og réttur innlendra fjármálastofnana eins og skilanefndar Landsbankans og Nýja Kaupþings, erlendra kröfuhafa eins og Barclay's, og jafnframt lífeyrissjóða, því fótum troðinn. Mikil óánægja er meðal kröfuhafa Exista með söluna og þeir kröfuhafar sem rætt var við sögðu að svo virtist sem verið væri að skjóta undan eignum.
Haukur Hafsteinsson, framkvæmdastjóri LSR, sagði við Morgunblaðið á þriðjudag að lífeyrissjóðurinn væri ósáttur við söluna og að hún hefði verið gerð án samráðs við sjóðinn. „Þessu bréfi verður svarað með viðeigandi hætti,“ segir Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Nýja Kaupþings, en vill ekki tjá sig að öðru leyti um söluna á Bakkavör úr Existu.
„Það er ekkert í okkar lánasamningum sem lagði þær skyldur á herðar okkar að ræða við íslenska kröfuhafa Exista um málið. Það er auðvitað sjálfsagt og gott að halda góðu sambandi við kröfuhafa. Þetta er aðgerð sem varð að ráðast í fyrir 24. september vegna ákvæða í lánasamningum Bakkavarar,“ segir Ágúst Guðmundsson. Hann segir að allir kröfuhafar sem kynni sér málið sjái í hendi sér að verið sé að bjarga verðmætum.


















