Gengi krónunnar styrkist um 0,60%
Gengi krónunnar hefur styrkst um 0,60% það sem af er degi og er gengisvísitalan komin niður í 232,89 stig. Bandaríkjadalur er 123,42 krónur, evran 181,44 krónur, pundið 201,88 krónur og danska krónan er 24,387 krónur, samkvæmt upplýsingum frá gjaldeyrisborði Íslandsbanka.
Greining Íslandsbanka segir í Morgunkorni sínu, að styrking krónunnar í dag skrifist á inngrip Seðlabankans. Bankinn, sem hafi látið gjaldeyrismarkaðinn óáreittan það sem af er september, virðist leitast við að halda gengi evru gagnvart krónu í grennd við 180 krónur þessa dagana.
„Á aflandsmarkaði virðist ríkja Fróðárfriður nú um stundir. Hefur gengi evru gagnvart krónu verið á bilinu 210 - 220 frá miðjum júlí og velta mun minni en raunin var á öðrum ársfjórðungi, ef marka má miðlunarkerfi Reuters," segir í Morgunkorni.



















