Mónakó af lista yfir skattaskjól
Mónakó hefur undirritað samning um að deila upplýsingum um skattgreiðslur með tólf öðrum ríkjum. Undirritunin dugir til að Mónakó verði tekið af lista yfir skattaskjól sem hafna alþjóðlegri samvinnu.
Með undirrituninni geta erlend skattyfirvöld fengið aðgang að upplýsingum um einstaka reikningseigendur í Mónakó að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Er þetta liður í vinna gegn þeim skattsvikum sem jukust í kjölfar efnahagskreppunnar.
Fyrr á þessu ári hafði OECD sett Mónakó á “gráan lista” með Liectenstein og Sviss, sem ríki sem gætu á von á viðurlögum þar sem þau væru ósamvinnuþýð skattaskjól. Samningurinn tekur til Andorra, Austurríkis, Bahamaeyja, Belgíu, Frakklands, Liechtenstein, Lúxemborgar, Quatar, Samóaeyja, San Marínó, Saint Kitts eyja og Bandaríkjanna.
Talið er að um 75 milljarðar evra liggi á innistæðureikningum banka í Mónakó.



















