Evrubréf ríkissjóðs hækka

Reuters

Stærsti skuldabréfaflokkur ríkissjóðs sem útgefinn er í evrum hefur hækkað í verði á erlendum mörkuðum um helming  frá byrjun marsmánaðar. Fyrir sjö mánuðum síðan fengust rúmlega 60 sent fyrir hverja evru nafnverðs þessara bréfa en í gær voru verðtilboð í þau nálægt 90 sentum á evru nafnverðs.

Greining Íslandsbanka segir í Morgunkorni sínu, að þessi verðbreyting jafngildi því að ávöxtunarkrafa bréfanna á eftirmarkaði hafi lækkað úr ríflega 22% niður í 7,7%. Um er að ræða 1 milljarðs evra útgáfu með gjalddaga í desember 2011 sem gefin var út í lok ársins 2006 í því skyni að styrkja gjaldeyrisforða Seðlabankans. 

Íslandsbanki segir, að þessi þróun evrubréfa ríkissjóðs sé til marks um að nokkuð hafi miðað áleiðis með að endurverkja trú á íslensku efnahagslífi frá áramótum, þótt minnkandi áhættufælni á heimsvísu spili vitanlega einnig stórt hlutverk. Þróun skuldatryggingarálags ríkissjóðs segi svipaða sögu, en 5 ára skuldatryggingarálag á ríkissjóð hafi lækkað úr 1050 punktum í upphafi mars niður í 365 punkta í gær.

Íslandsbanki segir, að þótt skuldatryggingarálag á heimsvísu hafi almennt farið lækkandi það sem af er ári sé lækkunin óvíða jafn mikil hlutfallslega og í tilfelli Íslands. Hins vegar verði að hafa í huga, að skuldatryggingarálag á Ísland er enn langhæst meðal Vestur-Evrópuríkja. Írland sé í öðru sæti með 135 punkta álag og Grikkland er í því þriðja með 123 punkta álag. Íslenska álagið sé meira í ætt við álag á skuldatryggingar sumra Austur-Evrópuríkja á borð við Lettland og Litháen, sem og skuldatryggingarálag Kasakstans. Þessi lönd eigi öll sammerkt að hafa fengið á sig harðan efnahagslegan skell og einnig hafigjaldmiðlar þeirra og fjármálakerfi átt undir högg að sækja.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK