Viðskipti
| mbl
| 25.9.2009
| 12:25
| Uppfært
13:25
Franskir bankar krefjast milljarða dala bóta
Stærstu bankar Frakklands gera milljarða dala kröfu í þrotabú bandaríska fjárfestingarbankans Lehman Brothers.
BNP Paribas leggur fram 1,3 milljarða dala kröfu í þrotabúið, Société Générale leggur fram 800 milljóna dala kröfu og Dexia 400 milljóna dala kröfu samkvæmt gögnum, sem skiptastjóri hefur birt á netinu.
Aðrir franskir bankar og tryggingafélög geta kröfur í þrotabúið og nema þær samtals hundruð milljóna dala. Kröfufresturinn rann út 22. september.
Óskað var eftir því 15. september í fyrra að bú Lehman Brothers yrði tekið til gjaldþrotaskipta. Upphaf fjármálakreppunnar er rakið til þessa atburðar.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















